Nýjar hraðhleðslustöðvar Orkubús Vestfjarða

11. september 2018

Orkubú Vestfjarða tók nýverið í notkun tvær nýjar hraðhleðslustöðvar (50 kW), annarsvegar á Hólmavík og hinsvegar á Patreksfirði, en þrjár stöðvar eru væntanlegar til uppsetningar fljótlega.

Stöðvarnar eru hluti af neti hraðhleðslustöðva, sem Orkubúið er að setja upp á Vestfjörðum, en fyrirhugað er að setja einnig niður tvær (50 kW) hraðhleðslustöðvar, annarsvegar í Bjarkalundi en hinsvegar í Flókalundi.  Þá verður sett niður 22 kW hleðslustöð í Reykjanesi við Ísafjarðardjúp.  Með tilkomu stöðvanna verður hægt  að aka á rafbíl, á milli allra stærri þéttbýlisstaða á Vestfjörðum, en einnig að vinsælustu viðkomustöðum ferðamanna og inn á hringveginn að næstu hraðhleðslustöð.  Stöðvarnar hafa fjölbreytta (3) tengimöguleika bæði fyrir jafnstraum og riðstraum. 

Orkubú Vestfjarða hefur gert samning við Ísorku varðandi aðgangsstýringu, vöktun og aðstoð við notendur og stöðvarnar verða ennfremur í smáforriti Ísorku þannig að hægt sé að fylgjast með stöðu þeirra á hverjum tíma.

_A9_3091-HDR-2.jpg

Hraðhleðslustöðvar eru nauðsynlegur hluti uppbyggingar innviða vegna rafbílavæðingar þótt reynslan erlendis sýni að algengast sé að rafbílar séu hlaðnir við heimili eða vinnustað.

02. apríl 2025

Kvíslatunguvirkjun í Steingrímsfirði – sótt um virkjunarleyfi

Á fundi stjórnar Orkubús Vestfjarða þ. 26 mars var tekin formleg ákvörðun um að sótt verði...

18. mars 2025

Starf svæðisstjóra á Hólmavík

Orkubú Vestfjarða leitar að starfsmanni til að stýra öflugum vinnuflokki sem er með höfuðstöðvar...

17. febrúar 2025

Sumarstörf í boði 2025

Sumarstörf í boði 2025