Hugum að jólaljósum og rafmagnsöryggi

15. desember 2017

Framundan er hátíð ljóss og friðar. Að mörgu þarf að hyggja og eitt af því er  að huga vel að jólaljósum, skreytingum og rafmagnsöryggi. Rafmagn er stórvirkur brennuvargur og á hverju ári verða eldsvoðar, sem eiga upptök sín í rafbúnaði.

Atriði sem vert er að hafa í huga:

  • Látum aldrei loga á ljósunum á jólatrénu.
  • yfir nótt eða þegar við erum að heiman.
  • Hendum gömlum jólaljósum sem eru úr sér gengin.
  • Notum ætíð ljósaperur af réttri gerð, stærð og styrkleika.
  • Gætum þess að brennanleg efni séu ekki nálægt jólaljósum.
  • Óvarinn rafbúnaður getur valdið raflosti.
  • Vörum okkur á óvönduðum jólaljósum.
  • Inniljós má aldrei nota utandyra.
  • Förum eftir leiðbeiningum um uppsetningu og notkun.
  • Látum logandi kerti aldrei standa ofan á raftæki.
  • Góður siður er að skipta um rafhlöður í reykskynjurum fyrir hver jól.

Mannvirkjastofnun hefur nýlega birt gagnlegar upplýsingar um jólaljós og rafmagnsöryggi. Orkubú Vestfjarða ráðleggur viðskiptavinum sínum og  landsmönnum öllum að kynna sér vel þessar leiðbeiningar.

rafmagnsoryggi.png

02. apríl 2025

Kvíslatunguvirkjun í Steingrímsfirði – sótt um virkjunarleyfi

Á fundi stjórnar Orkubús Vestfjarða þ. 26 mars var tekin formleg ákvörðun um að sótt verði...

18. mars 2025

Starf svæðisstjóra á Hólmavík

Orkubú Vestfjarða leitar að starfsmanni til að stýra öflugum vinnuflokki sem er með höfuðstöðvar...

17. febrúar 2025

Sumarstörf í boði 2025

Sumarstörf í boði 2025