Orkubú Vestfjarða hlýtur viðurkenningu á innra eftirlitskerfi með varmaorkumælum

30. október 2013

Orkubú Vestfjarða hefur hlotið viðurkenningu Neytendastofu á innra eftirlitskerfi með varmaorkumælum og er fyrsta dreifiveitan sem hlýtur slíka viðurkenningu. Ragnar Emilsson deildarstjóri eftirlitsdeildar tók við viðurkenningunni fyrir hönd Orkubúsins.

Af þessu tilefni kom fulltrúi Neytendastofu, Bjarni Bentsson, í heimsókn og afhenti Orkubúinu viðurkenninguna. Viðurkenningin er veitt samkvæmt reglugerð Nr. 561/2012 um mælifræðilegt eftirlit með varmaorkumælum.

Innra eftirlitið fer þannig fram að varmaorkumælum  er skipað í söfn eftir árgerð og gerðarauðkenni og í framhaldi er tekið úrtak af mælum og þeir prófaðir af viðurkenndri prófunarstofu. Standist mælar ekki úrtaksprófun þá er skipt um alla mæla í viðkomandi mælasafni.

Vert er að benda á gæðastefnu Orkubús Vestfjarða sem er að:

  • Vera ábyrgt fyrirtæki sem nýtur trausts viðskiptavina sinna og veitir þeim þjónustu af bestu mögulegu gæðum og með fullnægjandi afhendingaröryggi.
  • Vera meðvitað um áhrif starfssemi fyrirtækisins á umhverfið og draga úr óæskilegum umhverfisáhrifum svo sem kostur er. Vera fyrirmyndar vinnustaður þar sem aðbúnaður, hollusta og öryggi starfsmanna er sett í öndvegi.
  • Vera fyrirtæki sem uppfyllir ávalt opinberar kröfur sem gerðar eru til starfseminnar.
  • Vera fyrirtæki sem fer að kröfum ISO 9001 staðalsins og vinnur að stöðugum umbótum.

201310-1-1.jpg

02. apríl 2025

Kvíslatunguvirkjun í Steingrímsfirði – sótt um virkjunarleyfi

Á fundi stjórnar Orkubús Vestfjarða þ. 26 mars var tekin formleg ákvörðun um að sótt verði...

18. mars 2025

Starf svæðisstjóra á Hólmavík

Orkubú Vestfjarða leitar að starfsmanni til að stýra öflugum vinnuflokki sem er með höfuðstöðvar...

17. febrúar 2025

Sumarstörf í boði 2025

Sumarstörf í boði 2025