Þjónustukönnun Orkubús Vestfjarða

07. nóvember 2013

Orkubú Vestfjarða hefur nú þriðja árið í röð fengið Capacent til að vinna fyrir sig þjónustukönnun þar sem könnuð eru viðhorf viðskiptavina Orkubúsins til fyrirtækisins og þeirrar þjónustu sem fyrirtækið veitir. Helstu niðurstöður úr könnuninni og samanburð við fyrri kannanir má finna hér.


Markmið könnunarinnar var að mæla upplifun viðskiptavina af þjónustu fyrirtækisins og breytingar frá fyrri mælingu og fór hún fram 15. - 25. október 2013.

Í úrtakinu voru 1375 einstaklingar, af þeim svöruðu 548 könnuninni og þakkar Orkubú Vestfjarða þeim þátttökuna.

Það er Orkubúi Vestfjarða mikilvægt að þekkja viðhorf og væntingar viðskiptavina sinna og mun starfsfólk Orkubúsins nýta niðurstöður þjónustukönnunarinnar og leitast við að mæta væntingum viðskiptavina sinna enn betur.

Sækja niðurstöður úr könnuninni og samanburð við fyrri kannanir.

04. október 2024

Vel sóttur kynningarfundur vegna Kvíslatunguvirkjunar

Opinn kynningarfundur á vegum Orkubúsins vegna umhverfismatsskýrslu Kvíslatunguvirkjunar var...

30. september 2024

Íbúafundur vegna Kvíslatunguvirkjunar

Vegna vinnu við umhverfismat Kvíslatunguvirkjunar verður haldinn kynningarfundur á vegum Orkubús...

09. september 2024

Tímamótasamningur um sölu á forgangsorku

Elías Jónatansson, forstjóri Orkubús Vestfjarða og Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar,...