Viðgerð lokið á Breiðadalslínu 1

17. febrúar 2014

Breiðadalslína 1, sem liggur frá Mjólká að Breiðadal í Önundarfirði var sett inn í gærkveldi eftir viðgerð.  
Stæðan sem brotnaði er á Flatsfjalli, upp af Kajaranstaðardal, milli Dýrafjarðar og Arnarfjarðar. 

Þegar háspennumastur brotnar á stað sem þessum og á þessum árstíma er það mikið verk að gera við og margir sem koma að því.  Starfsmenn Orkubús og Landsnets unnu þetta með hjálp verktaka.  Moka þurfti Norðanverða Hrafnseyrarheiði og koma tækjum og efni að viðgerðarstað sem er um 7,5 km austur af háheiðinni.  

Viðgerð gekk vel.

201402-3-1.jpg

02. apríl 2025

Kvíslatunguvirkjun í Steingrímsfirði – sótt um virkjunarleyfi

Á fundi stjórnar Orkubús Vestfjarða þ. 26 mars var tekin formleg ákvörðun um að sótt verði...

18. mars 2025

Starf svæðisstjóra á Hólmavík

Orkubú Vestfjarða leitar að starfsmanni til að stýra öflugum vinnuflokki sem er með höfuðstöðvar...

17. febrúar 2025

Sumarstörf í boði 2025

Sumarstörf í boði 2025