Nú um áramót voru verðskrár Orkubús Vestfjarða fyrir dreifingu raforku hækkaðar en þær höfðu ekki verið hækkað á undangengnum 2 árum.
Orkustofnun er eftirlitsaðili með verðlagningu dreifiveitna og setur þeim árlega tekjumörk. ( Árleg tekjumörk eru þær tekjur sem dreifiveita þarf árlega til að standa undir rekstri sínum að mati Orkustofnunar). Orkustofnun hefur farið yfir og staðfest neðanskráðar hækkanir á verðskrám OV fyrir dreifingu raforku.
Verðskrá fyrir dreifingu raforku í þéttbýli hækkaði um 4%
Hækkun þessi er rökstudd með vísan til þess að verð hafa ekki breyst síðan í upphafi árs 2013 þrátt fyrir verðlagshækkanir (ca 6%). Skv uppgjöri tekjumarka fyrir árið 2013 voru tekjur OV af raforkudreifingu í þéttbýli 97% af tekjumörkunum. Bent er á að dreifigjaldskrár OV hafa alla tíð verið undir leyfilegum tekjumörkum og eru uppsafnaðar tekjuheimildir OV í lok árs 2013 um 472 Mkr. vanteknar í þéttbýli.
Verðskrá fyrir dreifingu raforku í dreifbýli hækkaði um 10%
Hækkun þessi er rökstudd með vísan til þess að verð hafa ekki breyst síðan í upphafi árs 2013 þrátt fyrir verðlagshækkanir (ca 6%). Skv uppgjöri tekjumarka fyrir árið 2013 voru tekjur OV af raforkudreifingu í dreifbýli 74% af tekjumörkunum. Þrátt fyrir þessa hækkun um 10% má búast við að tekjur ársins vegna dreifingar raforku í dreifbýli verði einungis um 77% af heimiluðum tekjumörkum. Bent er á að dreifigjaldskrár OV hafa alla tíð verið vel undir leyfilegum tekjumörkum og eru uppsafnaðar tekjuheimildir OV í lok árs 2013 um 410 Mkr. vanteknar í dreifbýli. Þá er einnig bent á að OV hefur og mun á næstu árum lagt út í mikinn kostnað vegna endurnýjunar dreifikerfa í sveitum þar sem þriggja fasa strengur er lagður í stað einfasa loftlínu.