Þjónustukönnun Orkubús Vestfjarða

03. febrúar 2016

Orkubú Vestfjarða hefur nú fjórða árið í röð fengið Capacent til að vinna fyrir sig þjónustukönnun þar sem könnuð eru viðhorf viðskiptavina Orkubúsins til fyrirtækisins og þeirrar þjónustu sem fyrirtækið veitir. Helstu niðurstöður úr könnuninni og samanburð við fyrri kannanir má finna hér.

Markmið könnunarinnar var að mæla upplifun viðskiptavina af þjónustu fyrirtækisins og breytingar frá fyrri mælingu og fór hún fram 23. - 9. október 2015.

Í úrtakinu voru 1352 einstaklingar, af þeim svöruðu 618 könnuninni og þakkar Orkubú Vestfjarða þeim þátttökuna.

Það er Orkubúi Vestfjarða mikilvægt að þekkja viðhorf og væntingar viðskiptavina sinna og mun starfsfólk Orkubúsins nýta niðurstöður þjónustukönnunarinnar og leitast við að mæta væntingum viðskiptavina sinna enn betur.

Helstu niðurstöður eru  svipaðar milli ára en þó sker sig úr að viðhorf viðskiptana til viðmóts og framkomu starfsmanna OV er mun betra en áður.

Sækja niðurstöður úr könnuninni og samanburð við fyrri kannanir

02. apríl 2025

Kvíslatunguvirkjun í Steingrímsfirði – sótt um virkjunarleyfi

Á fundi stjórnar Orkubús Vestfjarða þ. 26 mars var tekin formleg ákvörðun um að sótt verði...

18. mars 2025

Starf svæðisstjóra á Hólmavík

Orkubú Vestfjarða leitar að starfsmanni til að stýra öflugum vinnuflokki sem er með höfuðstöðvar...

17. febrúar 2025

Sumarstörf í boði 2025

Sumarstörf í boði 2025