Uppgjör orkureikninga

25. ágúst 2021

Nú í september og október verður farið í uppgjör í orkureikningum, en orkureikningar eru unnir eftir áætlun síðustu 11 mánaða og síðan er gert upp.

Það er margt sem getur skekkt gildandi áætlun, í báðar áttir, t.d. breytingar á heimilum, heitir pottar, veðurfar, fjölgun á heimilum eða fækkun o.s.frv.

Í september verður lesið af öllum mælum á okkar svæði og veitur gerðar upp. Við uppgjör hefst síðan ný áætlun, sem tekur mið af notkun síðustu 11 mánaða. Ef breytingar verða á heimilum, er gott að hafa samband svo hægt sé að gera ráð fyrir þeim breytingum í áætlun svo ekki að komi til þess að það komi hátt uppgjör við lok tímabilsins. 

Margir okkar mæla, ekki allir þó, eru búnir þannig að við náum sambandi við þá í gegnum netið og náum því álestrum af þeim mánaðarlega, við erum þó að vinna með áætlanir í flestum tilfellum. Það er hins vegar öllum frjálst, að hafa samband og óska eftir því að fá að greiða raunnotkun, þ.e. greiða raunnotkun eftir hvern mánuð. Þetta er hægt svo lengi sem við séum að ná sambandi við mælana.

04. október 2024

Vel sóttur kynningarfundur vegna Kvíslatunguvirkjunar

Opinn kynningarfundur á vegum Orkubúsins vegna umhverfismatsskýrslu Kvíslatunguvirkjunar var...

30. september 2024

Íbúafundur vegna Kvíslatunguvirkjunar

Vegna vinnu við umhverfismat Kvíslatunguvirkjunar verður haldinn kynningarfundur á vegum Orkubús...

09. september 2024

Tímamótasamningur um sölu á forgangsorku

Elías Jónatansson, forstjóri Orkubús Vestfjarða og Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar,...