Opinn ársfundur Orkubús Vestfjarða 2023

22. maí 2023

Opinn ársfundur Orkubús Vestfjarða verður haldinn í Edinborgarhúsinu á Ísafirði fimmtudaginn 25. maí kl. 12:00

Á fundinum verða kynntar helstu stærðir úr ársreikningi félagsins fyrir árið 2022 og rætt almennt um starfsemina.  Þá verður farið í stuttu máli yfir helstu framkvæmdir síðasta árs og þær framkvæmdir sem eru á dagskrá á þessu ári.  Einnig verður í stuttu máli farið yfir framtíðaráform fyrirtækisins.

Fundarmönnum verður gefinn kostur á að koma með fyrirspurnir til framsögumanna.

Ársfundurinn er öllum opinn og verður fundargestum boðið upp á súpu á staðnum.

Áætlað er að fundurinn standi til kl. 13:30

14. september 2026

20 ára bið – eða ný nálgun?

Nú liggja fyrir í samráðsgátt stjórnvalda „Drög að þingsályktun um stefnu stjórnvalda...

09. september 2026

Íbúafundur, Patreksfirði

Íbúafundur um stöðu veituframkvæmda og jarðhitaleitar

11. ágúst 2026

Hleðslustöðvar á Vestfjörðum.

Nú styttist í sólmyrkvann og búast má við mikilli umferð um Vestfirði í dag og næstu daga.