Opinn ársfundur Orkubús Vestfjarða 2024

14. maí 2024

Opinn ársfundur Orkubús Vestfjarða verður haldinn í Edinborg á Ísafirði föstudaginn 17. maí kl. 12:00

Á fundinum verða kynntar niðurstöður ársreiknings fyrir árið 2023 og rætt almennt um starfsemina.  Þá verður farið í stuttu máli yfir helstu framkvæmdir síðasta árs, þær framkvæmdir sem eru á dagskrá á þessu ári og framtíðaráform fyrirtækisins.  Á fundinum mun Auður Agla Óladóttir jarðfræðingur hjá ÍSOR flytja framsögu um jarðhitaleit á Vestfjörðum, en ÍSOR vann áætlun fyrir OV um jarðhitaleit í grennd við rafkyntar hitaveitur fyrirtækisins og stýrir nú þeirri jarðhitaleit sem fram fer á vegum Orkubús Vestfjarða þessi misserin.

Fundarmönnum verður gefinn kostur á að koma með fyrirspurnir til framsögumanna.

Ársfundurinn er öllum opinn og verður fundargestum boðið upp á súpu á staðnum.

Áætlað er að fundurinn standi til kl. 13:30

14. september 2026

20 ára bið – eða ný nálgun?

Nú liggja fyrir í samráðsgátt stjórnvalda „Drög að þingsályktun um stefnu stjórnvalda...

09. september 2026

Íbúafundur, Patreksfirði

Íbúafundur um stöðu veituframkvæmda og jarðhitaleitar

11. ágúst 2026

Hleðslustöðvar á Vestfjörðum.

Nú styttist í sólmyrkvann og búast má við mikilli umferð um Vestfirði í dag og næstu daga.