Tímamótasamningur um sölu á forgangsorku

09. september 2024

Elías Jónatansson, forstjóri Orkubús Vestfjarða og Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, undirrituðu í dag samning um sölu á forgangsorku til fjarvarmaveitna á Vestfjörðum næstu fjögur árin. Þannig verður hægt að reka fjarvarmaveiturnar án þess að reiða sig á olíu sem varaafl þegar afhending raforku er skert. Í nýjum samningi eru heimildir til skerðinga en þær eru takmarkaðar við fjóra daga en ekki 120 líkt og í eldri samningi.

Fjarvarmaveitur hafa hingað til keypt skerðanlega orku sem er seld á töluvert lægra verði en forgangsorka, enda er hún aðeins í boði í góðum vatnsárum. Samningurinn tryggir fyrirsjáanleika í rekstri fjarvarmaveitna á Vestfjörðum með tryggri raforkuafhendingu næstu fjögur árin.

Brúar bilið þar til jarðhitanýting hefst

Jarðhita hefur lengi verið leitað í grennd við Ísafjörð og í sumar bárust þær gleðifréttir að 58 gráða heitt vatn hefði fundist í Tungudal.

Samningnum er ætlað að brúa bilið á meðan Orkubú Vestfjarða þróar veiturnar þannig að þær geti nýtt þann jarðhita og bætt raforkunýtingu með varmadælum.

Orkubúið hefur skoðað framtíðarrekstur fjarvarmaveitna á Vestfjörðum og komist að þeirri niðurstöðu að þessi blandaða leið jarðvarmanýtingar og varmadælna henti best. Umbreytingin sem fram undan er dregur þannig úr þörf fyrir raforku og tryggir rekstur veitnanna til lengri tíma.

Mikilvægur þáttur í orkuskiptum

Elías Jónatansson, forstjóri OV:

„Samningurinn er mikilvægur þáttur í orkuskiptum á Vestfjörðum og er án efa stærsta skref sem Orkubú Vestfjarða hefur tekið til að ná kolefnishlutleysi. Þótt samningurinn leysi ekki rekstrarvanda fjarvarmaveitnanna að fullu þá skapar hann fyrirtækinu andrými til að vinna að þeim lausnum sem nú eru á teikniborðinu varðandi nýtingu þess jarðhita sem fundist hefur á Ísafirði og á Patreksfirði með hjálp varmadælna.“

Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar:

„Það er ákaflega ánægjulegt að hafa náð þessu mikilvæga samkomulagi við Orkubú Vestfjarða. Orkubúið hefur metnaðarfull áform um þróun fjarvarmaveitnanna í átt að kolefnishlutleysi og Landsvirkjun styður þá framtíðarsýn. Það er von okkar að þessi samningur marki upphaf fullra orkuskipta fjarvarmaveitna um allt land.“

04. október 2024

Vel sóttur kynningarfundur vegna Kvíslatunguvirkjunar

Opinn kynningarfundur á vegum Orkubúsins vegna umhverfismatsskýrslu Kvíslatunguvirkjunar var...

30. september 2024

Íbúafundur vegna Kvíslatunguvirkjunar

Vegna vinnu við umhverfismat Kvíslatunguvirkjunar verður haldinn kynningarfundur á vegum Orkubús...

18. júní 2024

Leyfum okkur að vera bjartsýn !

Jarðhitaleit í Tungudal á Ísafirði miðar ágætlega þessar vikurnar.