Öflugur jarðstrengur til Súðavíkur – Tenging kalkþörungaverksmiðu
Elías Jónatansson, forstjóri Orkubús Vestfjarða og Halldór Halldórsson, forstjóri Íslenska kalkþörungafélagsins skrifuðu í dag undir samning um tengingu nýrrar kalkþörungaverksmiðju við Langeyri í Súðavík. Um er að ræða 20 km langan jarðstreng á 33 kV spennustigi, sem liggja mun frá aðveitustöð OV á Ísafirði í nýja aðveitustöð OV sem áformað er að byggja í Súðavík.
Aukið afhendingaröryggi – aukin tækifæri í uppbyggingu
Nýr jarðstrengur mun leysa af hólmi núverandi loftlínu til Súðavíkur. Súðavíkurlína er um 8,5 km löng og var hafist handa við byggingu hennar árið 1956, þá tveir fasar en seinna var bætt við þriðja fasanum. Línan fer upp úr Engidal fyrir botni Skutulsfjarðar yfir Rauðkoll í um 800m hæð og niður Sauradal til Súðavíkur. Línustæðið er mjög erfitt yfirferðar og krefjandi fyrir viðgerðir og viðhald. Með lagningu jarðstrengs mun afhendingargeta í Súðavík margfaldast, en kalkþörungaverksmiðjan verður þar langstærsti notandinn.
Ný kalkþörungaverksmiðja í Súðavík
Áætlun Íslenska kalkþörungafélagsins (Ískalk) gerir ráð fyrir því að landfylling verði hæf til byggingar á árinu 2025. Hönnunarvinna stendur yfir varðandi hús og tækjabúnað og vonast er til að útboð geti farið fram síðari hluta vetrarins og að verksmiðja geti tekið til starfa um mitt ár 2027. Töluverðar tafir hafa orðið frá upphaflegum áætlunum og hafa leyfismál þar m.a. mikið að segja því öll leyfismál tóku mikið lengri tíma en reiknað var með.
Ný verksmiðja á að geta framleitt úr 125.000 m3 á ári og er vinnustaður fyrir 20-25 manns auk afleiddra starfa.
Elías Jónatansson, orkubússtjóri:
“Jarðstrengurinn mun auka afhendingaröryggi rafmagns í Súðavík verulega, en Súðavíkurlína er einn veikasti hlekkurinn í dreifikerfi Orkubús Vestfjarða. Samningurinn flýtir áformum Orkubúsins um öruggari tengingu til Súðavíkur um a.m.k. 10 ár. Hið sama má segja um framkvæmdir við nýja aðveitustöð í Súðavík, sem færist um leið af snjóflóðahættusvæði á öruggan stað. Um leið opnast möguleikar á að skapa fleiri ný atvinnutækifæri í Súðavík.
Það er ánægjulegt að samkomulagið sé í höfn. Samkomulag sem er forsenda uppbyggingar atvinnutækifæra í Súðavík og eykur um leið afhendingaröryggi raforku á staðnum til almennra neytenda.“
Halldór Halldórsson, forstjóri Íslenska kalkþörungafélagsins:
„Með samningi OV og Ískalk er komin vissa fyrir því að afhending rafmagns geti átt sér stað og að ekki sé lengur verið að velta fyrir sér að nota gas við þurrkun kalkþörunga. Um leið og þessi samningur styrkir afhendingu rafmagns til Súðavíkur svo um munar er enn mikil vinna eftir við að bæta rafmagnsinnviði Vestfjarða og nauðsynlegt er að framleiða meira rafmagn í sjálfum landshlutanum. Þessi samningur undirstrikar að það sem er gott fyrir fyrirtækin er gott fyrir samfélagið vegna þess að hér haldast í hendur afhendingarmöguleikar fyrir verksmiðju Ískalk sem mun skapa störf í Súðavík og aukið raforkuöryggi fyrir samfélagið.“
Bragi Þór Thoroddsen, sveitarstjóri Súðavíkurhrepps:
,,Það er afar ánægjulegt fyrir íbúa og samfélagið allt hér í Súðavík að Súðavíkurlína verði leyst af hólmi með lagningu jarðstrengs. Framboð á raforku til Súðavíkur mun gera kleyft að mæta þeirri þörf sem verður vegna verksmiðjureksturs Ískalks við Langeyri, auk þess sem auðveldara verður að takast á við orkuskipti og þá auknu raforkuþörf sem fylgir. Stóraukið svigrúm til afhendingar raforku breytir miklu í allri nálgun á uppbyggingu og þróun byggðar í Súðavík, ekki síst með tilliti til öruggari afhendingar raforku. Að Ískalk muni keyra sína starfsemi á endurnýjanlegri og grænni orku í stað brennslu jarðefnaeldsneytis er í miklu betra samhengi við alla nálgun og áætlanir til lengri tíma varðandi vinnu sveitarfélaga á Vestfjörðum í loftslagsmálum.
Fyrir hönd Súðavíkurhrepps fagna ég þessu heilshugar, að fundin hafi verið lausn sem styður framtíðarframleiðslu Ískalks sem og aðra þá starfsemi og notkun sem nauðsynleg er til þess að fjölga atvinnutækifærum á Vestfjörðum. Nægjanlegt og öruggt framboð á raforku er undirstaða jákvæðrar byggðaþróunar og hefur jákvæð áhrif á hagsæld samfélaga. Þá viljum við óska Orkubúi Vestfjarða og Ískalki til hamingju með mikilvægan áfanga."
Nánari upplýsingar veita:
Elías Jónatansson ej@ov.is s:892 4461
Halldór Halldórsson halldor@iskalk.is s:896 2890
Bragi Þór Thoroddsen bragi.thor.thoroddsen@sudavik.is s: 868 9272