Samfélagsstyrkir Orkubús Vestfjarða 2026

09. mars 2026

Orkubú Vestfjarða auglýsir eftir umsóknum um samfélagsstyrki 2026 

Samfélagsstyrkir Orkubús Vestfjarða eru veittir árlega sem stuðningur við einstaklinga og félög sem vinna að áhugaverðum og samfélagslega mikilvægum verkefnum á Vestfjörðum.  Við val á styrkþegum er leitast við að styrkja verkefni vítt og breitt um Vestfirði.  Verkefnin geta tengst starfsemi ýmissa félaga á Vestfjörðum, æskulýðsstarfi, menningarstarfsemi, listum eða öðrum áhugaverðum verkefnum til eflingar fyrir vestfirskt samfélag.

Miðað er við að einstakar styrkveitingar geti verið á bilinu 50 til 300 þúsund

Umsóknum skal skilað rafrænt með því að fylla út þetta rafræna eyðublað. 

Umsóknarfrestur er til og með 22. mars 2026.

14. september 2026

20 ára bið – eða ný nálgun?

Nú liggja fyrir í samráðsgátt stjórnvalda „Drög að þingsályktun um stefnu stjórnvalda...

09. september 2026

Íbúafundur, Patreksfirði

Íbúafundur um stöðu veituframkvæmda og jarðhitaleitar

11. ágúst 2026

Hleðslustöðvar á Vestfjörðum.

Nú styttist í sólmyrkvann og búast má við mikilli umferð um Vestfirði í dag og næstu daga.