Aðalfundur Orkubús Vestfjarða 2026

17. apríl 2026

Ársreikningur Orkubús Vestfjarða fyrir árið 2025 var samþykktur á aðalfundi félagsins 16. apríl, en opnir kynningarfundir með stjórn og stjórnendum Orkubúsins, eru áformaðir eftir miðjan maí á Hólmavík, Ísafirði og Patreksfirði.

Stjórn Orkubús Vestfjarða var endurkjörin á aðalfundinum, en í henni sitja:

Unnur Valborg Hilmarsdóttir, formaður
Ástvaldur Jóhannsson,
Sigríður Kristjánsdóttir,
Viktoría Rán Ólafsdóttir
Þröstur V. Söring

Rekstrarniðurstaða
Rekstrartekjur félagsins námu 4.410 m.kr. í samanburði við 4.297 m.kr. árið á undan, en EBIDTA nam 485 m.kr. sem er viðunandi ef tekið er tillit til óvæntra liða eins og aukningar í lífeyrisskuldbindingu og óvæntra bilana í rafkyntum hitaveitum.

Eignir félagsins námu 15,1 milljarði króna um áramót og skuldir 4,1 milljarði og eiginfjárhlutfallið  því 72,7% í árslok 2025.

Fjárhagur Orkubús Vestfjarða er sterkur og byggir á traustum grunni.  Félagið er því í góðri stöðu til að takast á við miklar fjárfestingar næstu ára.

Framkvæmt fyrir 4.500 m.kr. árið 2026
Árið 2025 var ár mikilla fjárfestinga, en heildarfjárfestingar námu 1.446 m.kr.  Þar var um að ræða fjárfestingar í aukinni orkuöflun á Vestfjörðum bæði í jarðhita og raforku auk þess sem unnið var að nýtingu jarðhita með varmadælulausn.  Þá var unnið áfram að styrkingu dreifikerfis raforku í dreifbýli og náðist m.a. stór áfangi þegar lokið var við jarðstrengjavæðingu í Árneshreppi.

Framkvæmdaáætlun ársins 2026 er metnaðarfull og er gert ráð fyrir fjárfestingum að fjárhæð 4.500 m.kr. á árinu.  Stærstu fjárfestingarnar í ár eru jarðstrengir til Súðavíkur og tilheyrandi aðveitustöðvar og búnaður fyrir um 1,5 milljarða króna en aðrar fjárfestingar á veitusviði, m.a. í frekari styrkingu dreifikerfisins, nema um 474 m.kr.  Þá er reiknað með 1,2 milljarða króna fjárfestingu í hitaveitum og jarðhita- og varmadælulausnum á Patreksfirði og á Ísafirði.  Fjárfest verður fyrir ríflega 900 m.kr. í Kvíslatunguvirkjun. 

Fjárfestingar félagsins, sem dreifast um alla Vestfirði, munu leggja grunninn að auknu orkuöryggi, hagkvæmari rekstri og sjálfbærni félagsins til framtíðar, sem eru í samræmi við það markmið stjórnar að styrkja innviði og leggja traustan grunn að öflugri framtíð samfélaganna á Vestfjörðum.

Hlekkur á:

 2026 Stjórn OV ásamt orkubússtjóra.jpg

Á myndinni  eru:

Þröstur V. Söring

Sigríður Kristjánsdóttir

Ástvaldur Jóhannsson

Elías Jónatansson, orkubússtjóri

Unnur Valborg Hilmarsdóttir, formaður stjórnar

Viktoría Rán Ólafsdóttir

13. maí 2026

Orkubú Vestfjarða auglýsir útboð vegna endurbóta á húsnæði á Patreksfirði

Orkubú Vestfjarða hefur auglýst opið útboð vegna endurbóta og breytinga á húsnæði við Aðalstræti...

28. apríl 2026

Samfélagsstyrkir Orkubúsins 2026

Orkubú Vestfjarða úthlutaði í dag 7,5 milljónum króna í samfélagsstyrki