Orkubú Vestfjarða auglýsir útboð vegna endurbóta á húsnæði á Patreksfirði

13. maí 2026

Orkubú Vestfjarða hefur auglýst opið útboð vegna endurbóta og breytinga á húsnæði við Aðalstræti 112 á Patreksfirði. Húsnæðið, sem áður hýsti Vélsmiðjuna Loga, verður aðlagað fyrir starfsemi Orkubúsins, kyndistöð, spennistöð og geymsla. 

Verkið felur meðal annars í sér byggingarvinnu, lagnavinnu, raflagnir og almennan innanhússfrágang. Framkvæmdir skulu hefjast að lokinni samningsgerð og er stefnt að verklokum fyrir árslok 2026.

Tilboðsfrestur rennur út 8. júní 2026 kl. 14:00 og fara skil og opnun tilboða fram rafrænt á útboðsvef https://in-tendhost.co.uk/orkubu/

02. október 2026

Kvíslatunguvirkjun - Útboðs auglýsing

Orkubúið stefnir á að bjóða út mannvirkjahluta Kvíslatunguvirkjunar, reiknað er með að útboðsgögn...

14. september 2026

20 ára bið – eða ný nálgun?

Nú liggja fyrir í samráðsgátt stjórnvalda „Drög að þingsályktun um stefnu stjórnvalda...

09. september 2026

Íbúafundur, Patreksfirði

Íbúafundur um stöðu veituframkvæmda og jarðhitaleitar