Orkubú Vestfjarða auglýsir útboð lagningu hitaveitulagna og jarðstrengja á Patreksfirði

26. maí 2026

Okkur langar að vekja athygli ykkar á því að nú hefur nýtt útboð nr. 2026-05 – Endurnýjun á dreifikerfi hitaveitu á Patreksfirði verið birt á útboðsvef Orkubús Vestfjarða ohf.: https://in-tendhost.co.uk/orkubu/

Verkið felst í lagningu nýs dreifikerfis hitaveitu ásamt tilheyrandi jarðvinnu, þverunum gatna og fullnaðarfrágangi yfirborðs. Samhliða hitaveitu nær verkið til umtalsverðrar lagningar annarra veitulagna, þar á meðal um 1.500 metra af vatnsveitupípum auk rafstrengja (11kV og 400V) og ljósleiðara. Um er að ræða lagningu foreinangraðra hitaveitulagna af mismunandi stærðum frá borholu austan kirkjugarðs að Aðalstræti, Sigtúni, Strandgötu, Þórsgötu og Túngötu, ásamt háspennustrengjum, ljósleðara og vatnsveitulagnar hluta leiðarinnar. Framkvæmdatíma skal ljúka eigi síðar en 15. nóvember 2026. Útboðið er opið útboð og fer fram á útboðsvef Orkubús Vestfjarða.

Bjóðendum er bent á að kynna sér aðstæður á staðnum, verklýsingar og teikningar.

Með því að skrá fyrirtæki á vefinn getið þið nálgast útboðsgögnin án endurgjalds.

Öllum fyrirspurnum vegna þessa útboðs verður svarað í gegnum útboðsvefinn.

13. maí 2026

Orkubú Vestfjarða auglýsir útboð vegna endurbóta á húsnæði á Patreksfirði

Orkubú Vestfjarða hefur auglýst opið útboð vegna endurbóta og breytinga á húsnæði við Aðalstræti...

28. apríl 2026

Samfélagsstyrkir Orkubúsins 2026

Orkubú Vestfjarða úthlutaði í dag 7,5 milljónum króna í samfélagsstyrki