Nú styttist í sólmyrkvann og búast má við mikilli umferð um Vestfirði í dag og næstu daga. Nýlega hefur hleðslustöðvum Orkubúsins á svæðinu fjölgað:
• Ný 200 kW hraðhleðslustöð á Patreksfirði
• Tvær nýjar 50 kW hraðhleðslustöðvar á Tálknafirði
• Ný 240 kW hraðhleðslustöð á Króksfjarðarnesi
Margir bílar lögreglu og annarra viðbragðsaðila eru rafknúnir. Við hvetjum vegfarendur því til að hafa þarfir viðbragðsaðila í huga við hleðslustöðvar og sýna þeim sérstaka tillitssemi ef aðstæður kalla á. Við óskum öllum góðrar ferðar og hvetjum fólk til að fara varlega og njóta þessa einstaka náttúruviðburðar á Vestfjörðum.